OpenAI

20. október 2026

Fyrirtæki

OpenAI kaupir Orchestra Bio

Vettvangur fyrir lyfjaþróun sem nýtir gervigreind flýtir fyrir þróun nýrra meðferða.

Hleður inn...

OpenAI hefur keypt Orchestra Bio⁠(opnast í nýjum glugga), vettvang sem hjálpar teymum í líflyfjaþróun að samhæfa hið flókna ferli við þróun lyfja. Við sameinum teymi og tækni Orchestra við Rosalind, gervigreindarlíkön okkar og verkfæri fyrir rannsóknir í lífvísindum. Markmið okkar er að hjálpa vísindafólki að gera uppgötvanir og stýra þeirri vinnu sem þarf til að nýta þær í meðferðum sem standa sjúklingum fyrr til boða.

Þróun nýs lyfs er afar flókið ferli. Í Bandaríkjunum tekur það að meðaltali um 10 til 15 ár frá því að lyfjamark finnst þar til lyfið hlýtur samþykki eftirlitsstofnana. Auk vísindastarfsins þurfa teymin að samhæfa verkefni þvert á innri deildir og utanaðkomandi samstarfsaðila, oft með hjálp kerfa sem eru ekki tengd saman. Nú stöndum við á tímamótum þar sem gervigreind getur hjálpað til við að sinna þessum sérhæfðu verkefnum og flóknu verkferlum.

Rosalind og Orchestra sameinuð

Rosalind veitir vísindafólki á sviði lífvísinda aðgang að gervigreindarlíkönum okkar og verkfærum. GPT‑Rosalind hjálpar vísindafólki að rýna í spurningar á sviði líffræði og efnafræði. Rosalind Workbench⁠ tengir þessa getu við vísindaleg verkfæri og gögn til að hjálpa vísindafólki að greina niðurstöður og skipuleggja tilraunir.

Orchestra leggur til teymi með reynslu af líftækni, hugbúnaði og gervigreind, ásamt vettvangi sem er hannaður til að samhæfa lyfjaþróun. Saman stefnum við að því að þróa gervigreindarfulltrúa sem hjálpa teymum að tengja vísindalegar niðurstöður við þær rannsóknir, ákvarðanir og næstu skref sem þarf til að koma vænlegu lyfjaefni áfram í þróun.

Hannað fyrir vinnulag teyma í líflyfjaþróun

Orchestra Bio er vettvangur þar sem fólk og gervigreindarfulltrúar vinna saman að því að koma lyfjaþróunarverkefnum áfram. Vísindafólk og verkefnastjórar fela fulltrúum að vakta rannsóknir og verkefnalotur og fylgjast með framvindu þeirra. Þannig gefst meiri tími til að stýra vinnunni, taka ákvarðanir og leysa vandamál áður en þau valda töfum.

Vandamál í einum hluta lyfjaþróunarverkefnis getur haft áhrif á marga aðra hluta þess. Ef framleiðslulota mistekst getur það til dæmis tafið upphaf klínískrar rannsóknar. Fulltrúar Orchestra hjálpa teymum að greina hvaða verkþættir og tímaáætlanir verða fyrir áhrifum, afla viðeigandi upplýsinga og bera saman möguleg viðbrögð. Vísindafólk og verkefnastjórar geta síðan nýtt þá greiningu til að ákveða næstu skref.

Til að nýta möguleika gervigreindar í lífvísindum þarf náið samstarf við fyrirtæki og stofnanir sem eru í fararbroddi við leit að nýjum lyfjum og þróun þeirra. Samstarf okkar við Novo Nordisk⁠ miðar að því að nýta umfang starfseminnar og vísindalega sérþekkingu fyrirtækisins til að hraða rannsóknum, þróun og viðskiptaverkefnum, um leið og vandaðir stjórnarhættir eru tryggðir. Hjá Moderna⁠ hjálpar gervigreind teymum að nýta innsýn úr flóknum gögnum við mótun verkferla fyrir tilraunir, sem gæti hraðað rannsóknum og þróun.

Framtíðarsýn okkar er að gervigreind styðji vísindafólk í öllu ferlinu við að finna og þróa ný lyf: við að kanna hugmyndir, hanna tilraunir, túlka niðurstöður og samhæfa þá vinnu sem þarf til að þróa áfram efnilegar meðferðir. Sameining Orchestra Bio og Rosalind er skref í átt að þeirri framtíðarsýn. Í samstarfi við vísindafólk og samstarfsaðila okkar stefnum við að því að gera fleiri uppgötvanir mögulegar og hjálpa til við að ný lyf komist fyrr til sjúklinga.

Höfundur

OpenAI